Fiskibollur með RækjuBragði
Fiskibollurnar eru úr smiðju Inga Hafliða Guðjónssonar matreiðslumanns. Þær má hvort sem er borða heitar eða kaldar. Með heitum bollum er mælt með
karrý graslaukssósu sem uppskrift er af hér á vefsetri NorðurÍss. Með köldum bollum má nota ýmiskonar ídýfur.
1 kg.. fiskhakk
100 gr. RækjuBragð
2-3 tsk sítrónupipar
2 tsk kóríander
2 egg
2 dl. Rjómi eða mjólk
Salt og pipar eftir smekk
hveiti til bindingar
Blandið öllu sem á að fara í deigið í hrærivélarskál og hrærið saman í nokkrar mínútur. Mótið bollur úr farsinu og steikið á pönnu þar til tilbúnar. Einnig hægt að forsteikja og klára í ofni við 180C í ca 10-12 mín.
Heitar bollur berast fram með Karrý- Graslaukssósu og kartöflum eða hrísgrjónum.