Sjávarréttarsúpa Inga Hafliða
Sjávarréttasúpa fyrir 10 manns, úr smiðju Inga Hafliða Guðjónssonar matreiðslumanns.
200 gr. UfsaBragð
1 laukur fíntsaxaður
2 msk. karrý
2 tsk dill
2 dl. óáfengt hvítvín eða mysa (má sleppa)
1 1/2 dl vatn
1 dl rjómi
1 dl mjólk
Safi úr hálfri sítrónu
Grænmetiskraftur eftir smekk
Salt og pipar
Olía til steikingar
Svissið laukinn í olíunni þartil hann verður mjúkur. Setjið karrý saman við og látið krauma og hellið síðan hvítvíninu/mysunni og sítrónusafanum saman við og látið sjóða. Setjið vatn, dill, grænmetiskraft og UfsaBragð útí og látið sjóða smástund. Þykkið með smjörbollu og látið sjóða áfram góða stund. Setjið loks mjólk, rjóma og salt og pipar eftir smekk og berið fram.
Í þessa súpu má setja hvaða fisk sem er. Upplagt er að nota afganga af soðnum fiski sem og rækjur og annan skelfisk.