 |
 |
 |
Fersk ufsaflök
UfsaBragð er hrein íslensk náttúruafurð. Helstu eiginleikar þess eru:
- UfsaBragð er unnið úr roðflettum frystum ufsaflökum (Pollachius virens).
- Hráefnið verður að standast strangar kröfur sem NorðurÍs setur um ferskleika og bragðæði þess. Gæði hráefnisins ráða endanlegum gæðum afurðarinnar annarsvegar og að gæðin eru stöðug hinsvegar.
- Bragðgæðin eru mikil. Bragðið er hrein, tært bragð og milt fiskibragð.
- UfsaBragð ilmar eins og nýr ferskur fiskur.
- Liturinn er ljós, örlítið gráleitur, sem hefur óveruleg áhrif á lit
réttsins sem það er notað í
- Handhægt er fyrir matreiðslumeistarann að vinna með fryst UfsaBragð.
Hann getur annaðhvort tekið allt úr pakkningunni í einu, sem er auðvelt,
eða látið UfsaBragðið hitna lítillega svo það verði auðvelt að bregða á
það hnífi og ná sér þannig í heppilegt magn. Ef það er gert er það látið
standa í um 10 mínútur á borði við stofuhita, áður en hnífnum er brugðið
á það.
- UfsaBragð leysist algjörlega upp í vatni, hratt og auðveldlega.
- Engin íblöndunarefni eru í UfsaBragði, af neinu tagi. Það er eingöngu
unnið úr ufsaflökum. Engu salti, kryddi, bragðmögnurum eða öðru
efni er bætt út í. UfsaBragð truflar því ekki annað sem nota á í réttinn.
- Mælt er með því að UfsaBragð sé geymt fryst, en ef það er geymt
uppþítt í ískáp skal hræra það fyrir notkun.
-- Efnainnihald Ufsabragðs
|
|