Góð þjónusta í fyrirrúmi
NorðurÍs leggur áherslu á að matreiðslumeistarar og aðrir sem annast
innkaup fyrir veitingahús geti nálgast NorðurBragð með sem þægilegustum
hætti. Í þeim tilgangi eru gerðir dreifingarsamningar við fyrirtæki á
hverju markaðssvæði sem sjá um að þjóna veitingahúsum og eldhúsum sem
framleiða og selja tilbúna rétti til neytenda. Við val á
dreifingaraðilum leggur NorðurÍs áherslu á að finna fyrirtæki sem
kappkosta að vera leiðandi á sínu sviði á viðkomandi markaðssvæði með
því að leggja mikla áherslu á góða þjónustu við viðskiptavinina.
|