-  Heim -  Hvað er NorðurBragð -  Uppskriftir -  Mat meistaranna -  Um NorðurÍs -  Pantanir -  Matarhlekkir - 

Garri ehf. þjónar íslenska markaðinum
NorðurÍs stefnir að því að þjóna vel íslenskum matreiðslumeisturum og hefur sett sér það markmið að íslenskir veitingastaðir noti NorðurBragð í matargerð sinni. Til að ná þessu markmiði hefur tekist náið samstarf milli heildverslunarinnar Garra ehf. og NorðurÍss hf. Garri hefur tekið að sér að dreifa NorðurBragði til íslenskra veitingahúsa og eldhúsa. Garri er vel í stakk búinn til að meðhöndla vöruna eftir ýtrustu kröfum NorðurÍss. Heildsalan veitir viðskiptavinum sínum góða þjónustu og mun varðveita gæði NorðurBragðs í sínum hluta keðjunnar frá framleiðslu til endanlegs neytanda. Ný aðstaða Garra að Lynghálsi 2 í Reykjavík hentar afar vel til að veita þessa þjónustu. Vefsvæði Garra er www.garri.is. Þar geta viðskiptavinir Garra fengið góða yfirsýn yfir starfsemina og aðgang að starfsfólki fyrirtækisins. NorðurÍs hvetur matreiðslumeistara og aðra starfsmenn veitingahúsa og eldhúsa á Íslandi til að kynna sér starfsemina á vefsvæði Garra.




Garri ehf. þjónar íslenska markaðinum
Lasse Lundqvist Oy í Finnlandi
Aðrir markaðir
Merkingar umbúða
Fyrirspurn

NorðurÍs hf Stórhöfða 15 112 Reykjavík Sími: 520 2036 Fax: 520 2026 northtaste@northtaste.com